Gleðilegt sumar !

CoolGóðan og blessaðan daginn! Já sól og blíða..... Verður ekki betraSmile Svona á seinasti vetrardagur að vera gott að þakka fyrir veturinn með blíðu. Og ég er af gamla skólanum ætla að kaupa smá sumargjafir handa börnunum, er sjálf alin upp við þennan sið og kann vel við hann. Hver er ekki glaður með að fá gjöfTounge. Og talandi um gjafir þá var ég á heimasíðu frænku minnar, sem Guðný Lára heitir og er ung og efnileg söng/textahöfundur

http://lostintime.blog.is/blog/lostintime/ endilega kíkið á þetta, það er gjöf í boði Wink.

Nú er bara að vona að vetur og sumar frjósi saman, þá segir hjátrúin okkur ( og ég er hæfilega hjátrúarfull ) að sumarið verði gottWhistling.

Ég hef nú ekki bloggað mikið undanfarið. En get sagt ykkur að aðalfundur Samfylkingarinnar í Hafnarfirði hefur verið haldinn, og frúin komin þar í stjórnCool. Já, já ég er svolítið pólitísk.....

Ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars og takk fyrir veturinnCool

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

komdu sæl Helena mín og gleðilegt sumar kveðja Inga Sigga

ingileif Finnbogadóttir (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 17:32

2 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Gleðilegt sumar.

Engin miskunn!!!

Jón Halldór Guðmundsson, 24.4.2008 kl. 01:09

3 Smámynd: Guðný Lára

hæhæ og gleðilegt sumar :) Mér skilst að vetur og sumar hafi frosið saman hérna á norðurlandinu... þannig að vonandi verður svakalega gott sumar hérna!!! Og mundu svo að þið eruð alltaf velkomin í kaffi ef þið eigið leið um Akureyri :)
kveðja Guðný Lára

Guðný Lára, 26.4.2008 kl. 15:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Ég er varabæjarfulltrúi f. Samfylkinguna í Hafnarfirði. Og starfa sem ráðgjafi/fulltrúi á skrifstofunni hjá Meðferðarheimilinu í Krýsuvík. Er formaður Forvarnarnefndar Hafnarfjarðar. Talsmaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar. En fyrst og fremst er ég móðir 4 fábærra baran/unglinga og eiginkona míns ekta maka Hans
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband