20.12.2009 | 14:22
Jólin, jólin, jólin koma brátt.....
..... jólaskapið kemur smátt og smátt.
Munum bara öll að vera góð hvort við annað þrátt fyrir pólitík og tilheyrandi. Það eru erfiðir tímar á íslandi í dag, því er það mikilvægt að horfa fram á við og láta ekki kreppuna skemma jóla-andann, við getum haldið heilög jól og gert hlutina á ódýrari hátt og það held ég að flestir séu að gera.
Hins vegar er löngu tímabært að horft sé meira til heimilanna í landinu þegar kemur að kostnaði í þjóðfélaginu. Það eru hækkanir alls staðar og öll aukning kemur á heimilin, meðan að laun standa í stað hjá fólki. Og fólk missir vinnu hægri vinstri. Það er ekki hægt að halda svona áfram, almenningur hefur fengið nóg, eins og sést þegar fólk flykkist í miðbæinn til að mótmæla ástandinu. Ég ber hins vegar þá ósk í brjósti mér að það sé verið að hugsa um almenning í næstu skrefum..... Njótum aðventunnar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.