New York, New York, New York.......

Frúin bara á leið til stórborgarinnar með sínum ekta maka og vinnufélögum í Krýsuvík. Þetta verður auðvitað tóm gleði og gaman. Cool  Ekki skemmir að sjálfur Bush er ekki heima í höllinni og kannski ég geri bara eins og einn vinur minn sagði í kvöld; fari og banki upp á hjá Clinton-genginu. Kannski ég geti bara kosið í leiðinniTounge. Verst að ég er alltaf sami hrakfallabálkurinn og í kvöld tókst mér að brjóta eða bráka litlu tánaPouty, ekki alveg nógu gott fyrir borgarröltið. En þetta er nú ekkert miðað við að vera í París í sumar í 35 C° og með rifinn vöðva í kálfanum. Hvað er þetta með mig og stórborgirWoundering. Farið varleg í umferðinni og fannferginu og njótið fallega veðursins.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ármann Eiríksson

Kæra vinkona, þakka þér fyrir bloggsendingarnar og hlýja strauma sem þeim hafa fylgt.  Ég óska þér og Hansa hjartanlega góðrar ferðar vestur um haf.  Hugsaðu þér það bara hafa verið ráðgert að þú meiddir þig pínulítið í tánni, kemst samt til Wasington, ferð bara heldur hægar yfir, lætur Hansa styðja þig og leiða, útgjöldin verða minni fyrir bragðið og þú ferð nú varla að hlaupa fyrir bíl eins og þú ert á þig komin. Njóttu þess að horfa á umhverfið sem er stórkostlegt og allt mannfólkið sem á leið bæði fyrir framan, til hliðar og fyrir aftan þig, hver með sína áætlun í kollinum sem þú færð aldrei að vita um en ímyndaðu þér bara hvað hver og einn er að erinda.  Úr þeirri lífsreynslu gæti orðið góð og skemmtileg saga síðar meir ef þú verður bara nógu dugleg að "glósa".

Gangi ykkur vel kæru vinir og njótið þess að vera til. 

kær kveðja,  Ármann 

Ármann Eiríksson, 17.1.2008 kl. 21:40

2 Smámynd: Guðný Lára

hæhæ ég vona að táslan þín sé til friðs í stórborginni!  ég þakka kveðjurnar frá þér og verið svo velkomin í heimsókn næst þegar ferðinni er heitið norður

kv Guðný Lára

Guðný Lára, 23.1.2008 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Ég er varabæjarfulltrúi f. Samfylkinguna í Hafnarfirði. Og starfa sem ráðgjafi/fulltrúi á skrifstofunni hjá Meðferðarheimilinu í Krýsuvík. Er formaður Forvarnarnefndar Hafnarfjarðar. Talsmaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar. En fyrst og fremst er ég móðir 4 fábærra baran/unglinga og eiginkona míns ekta maka Hans
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 748

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband