4.2.2009 | 02:50
Á inni fé hjá Kaupþingi
Hver á ekki pening inni hjá Kaupþingi og öllum hinum? Ég bara spyr! Mikið vildi ég að við hefðum áhyggjur af einhverju öðru en því hvernig þessir bankar standa í útlöndum, ekki svo að skilja að mér þyki í lagi hvernig þeir hafa hagað sér eins og börn í sandkassaleik. Það er skömm að þeir skuli koma á okkur óorði út um allan heim.Þessir líka flottu og flinku menn sem þurftu svo hátt kaup, vegna þess, takið eftir, vegna þess; að þeir væru svo klárir í peningamálum. Ja mikil ósköp, lítið fór nú fyrir þeim gáfum. Gott að ég lét þá ekki ráðleggja mér við að kaupa í matinn..... Nú, af hverju segi ég það; halló! Þarf að spyrja... þá væri fjölskyldan löngu dauð úr hungri
Á inni fé hjá Kaupþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þessir gaurar þurftu líka svo há laun vegna þess að þeir báru svo "mikla" ábyrgð.
Furðulegt hvernig þeir komust algjörlega hjá því að taka á sig ábyrgð á endanum... ... ...
Imba (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 11:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.