Vá, vá, vá...... Krónan hvað???

Ekki ber á öðru en að krónan okkar styrkist og um heil 0,4% í dag. Og hvað eigum við að dansa og fagna, ég bara spyr  LoL. Það er löngu tímabært að stjórnvöld fari að taka ábyrgð á ástandinu hér og gengi krónunnar spilar þar stóra rullu. Hvað ætlum við að leyfa bönkunum að leika sér lengi á erlenda vísu, á okkar ábyrgð? Ég er búin að fá nóg og svo er um marga. Mér verður hugsað til þess að ég var fyrir akkúrat ári síðan stödd í París og þótti þá Evran standa fullstyrkum fæti miðað við okkar ágætu Krónu, en þá var Evran á sa. 90,00 en í dag er hún 121,6. Það segir sig sjálft að kaupmáttur launa okkar er enginn.... já enginn. Og stöðugleiki hvað er það? Hann er ekki til í íslensku efnahagslífi, þannig er það bara.Það er kominn tími fyrir aðgerðir...... Við verðum að koma hér á efnahagsástandi, sem fólk horfir til og trúir á. Halda kannski eihverjir  að við kæmumst inn í EES eins og ástandið er hér ??? Nei, nei og aftur nei. Við getum gleymt öllu í þá veru. Woundering Ég held að fólk ætti aðeins að kíkja á það sem Árni Páll Árnason er að skrifa/ og segja http://www.arnipall.is  Það er mjög fróðlegt fyrir alla.  Ég gæti með leik skrifað hér margar síður af áhyggjum mínum af ástandinu hér í efnahagsmálum, því það líður ekki svo vikan að ég taki ekki syrpu ýmist í; huganum eða skelli því á mína pólitísku meðbræður, fjölskyldu og vini. En ég ætla að láta staðar numið hér og vona að eitthvað bitastætt fari að gerast, því ástandið kallar á að brugðist verði við og það ekki seinna en í dagErrm. Ég læt hér staðar numið. Verð svo að fara og kaupa inn með krökkunum, því skólinn er að fara að byrja..... Alltaf hugur á heimilinu og viss spenna hjá börnunum að fara og hitta alla skólafélagana....

 


mbl.is Krónan styrktist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Ég er varabæjarfulltrúi f. Samfylkinguna í Hafnarfirði. Og starfa sem ráðgjafi/fulltrúi á skrifstofunni hjá Meðferðarheimilinu í Krýsuvík. Er formaður Forvarnarnefndar Hafnarfjarðar. Talsmaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar. En fyrst og fremst er ég móðir 4 fábærra baran/unglinga og eiginkona míns ekta maka Hans
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 712

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband