Öruggara að sofa ekki heima....

.... segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, en hann er einn af 50 íbúum á bæjunum þar, sem rýma þurfti hús í nótt og finnst öruggara að vera ekki heldur heima hjá sér nú í nótt, og er það vel skiljanlegt.Sleeping  Ég er ekki sannspá, en þann 6. mars sirka talaði ég um að það væri von á gosi og hélt að það kæmi kannski á sama tíma og við kusum á móti ICESAVE..... en ekki rættist það þá. Svo sem varla hægt að segja að ég hafi gripið það úr tómu lofti, flest benti til þess. Errm Hins vegar er gosið byrjað og hver veit hversu lengi það heldur áfram eða hvort að það fari að gjósa í Kötlu, en samspil virðist alla jafna vera á milli þessara tveggja eldstöðva. Veiga Dís mín yndislega dóttir átti 12 ára afmæli í gær og fékk því eitt stk. eldgos í lok skemmtilegs afmælisdags, ekki amalegt það.Grin  Ég hef fengið nokkrar hringingar frá vinum í útlöndum, sem hafa áhyggjur af okkur hér heima á Íslandi, finnst nóg um að við lifum við mikla kreppu svo ekki bætist þetta nú við. Ég hins vegar er einu sinni þeirra skoðunar að við þurfum að kunna að lifa í sátt við náttúruna og finnst okkur takast það betur en í sátt við leiðinda "kreppu"Wink
mbl.is Öruggara að sofa ekki heima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það gæti orðið tveir fyrir einn hjá öllum erlendu fréttamönnunum hér um helgina, ekki bara Icesave kannski líka eldgos....

Ætli flestir þeir fréttamenn erlendis frá sem hér eru staddir þessa dagana hafi ekki komið vegna Icesave-kosningannaWink Hvað gerist á morgun í sjálfum kosningunum veit ég ekki, en ég er alla vega ein þeirra sem mæti á kjörstaðTounge En hitt er þó alveg öruggt að þessir tveir skjálftarDevil, sem mældust tæplega 3 á Richter, undir Eyjafjallajökli í gærmorgun, svo Almannavarnir eru í viðbragðsstöðu, krydda örugglega nægjanlega tilveru alls þessa hóps fréttamanna. Þannig að kannski það verði tveir fyrir einn á lágu gengi íslensku krónunnarW00t Spennandi dagur framundan;)
mbl.is Fjöldi skjálfta yfir 2 á Richter
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég býð mig fram í 5.-7. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði kosið verður 30.janúar 2010

 

 

Helena Mjöll

Jóhannsdóttir

meðferðarfulltrúi og

varabæjarfulltrúi

5. - 7.

sæti

Aldur: 49 ára.

Menntun og starf: Lærður útstillingahönnuður, tækniteiknari og vímuefna–

og áfengisráðgjafi. Starfa sem meðferðarfulltrúi hjá Meðferðarheimilinu

Krýsuvík. Er varabæjarfulltrúi.

Fjölskylda: Maki: Hans Unnþór Ólason húsasmíðameistari og innanhússarkitekt

og eigum við 4 börn: Lovísu Dröfn 22ja ára háskólanema í

Danmörku, Óla Hreiðar 16 ára menntaskólanema, Bjart Ara 14 ára

grunnskólanema og Veigu Dís 11 ára grunnskólanema.

Félagsstörf: Hef verið virk í Samfylkingunni frá byrjun hennar. Var formaður

forvarnarnefndar, er varaformaður Samfylkingarinnar í Hafnarfirði,

varaformaður menningar- og ferðamálanefndar og sit í stjórn kjördæmisráðs

Samfylkingar SV. Starfaði með ITC Iris og var forseti deildarinnar.

Formaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar og hef starfað mikið á vettvangi

foreldrafélaga. Sat um árabil í stjórn Seyðfirðingafélagsins.

Áherslur: Fræðslu og skólamál - Velferðarmál - Forvarnir og æskulýðsmál

- Ferða- og umhverfismál - Aðhald og skynsemi í opinberum rekstri

- Samvinna allra kjörinna bæjarfulltrúa.

Helena Mjöll

Jóhannsdóttir

meðferðarfulltrúi og

varabæjarfulltrúi

5. - 7.

sæti

 


Jólin, jólin, jólin koma brátt.....

..... jólaskapið kemur smátt og smáttGrin.

 Munum bara öll að vera góð hvort við annað þrátt fyrir pólitík og tilheyrandi. Það eru erfiðir tímar á íslandi í dag, því er það mikilvægt að horfa fram á við og láta ekki kreppuna skemma jóla-andann, við getum haldið heilög jól og gert hlutina á ódýrari hátt og það held ég að flestir séu að gera. Sideways

Hins vegar er löngu tímabært að horft sé meira til heimilanna í landinu þegar kemur að kostnaði í þjóðfélaginu. Það eru hækkanir alls staðar og öll aukning kemur á heimilin, Frown meðan að laun standa í stað hjá fólki. Og fólk missir vinnu hægri vinstri. Það er ekki hægt að halda svona áfram, almenningur hefur fengið nóg, Shocking eins og sést þegar fólk flykkist í miðbæinn til að mótmæla ástandinu. Ég ber hins vegar þá ósk í brjósti mér að það sé verið að hugsa um almenning í næstu skrefum..... Njótum aðventunnarInLove


Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal og .......

..........Mark Hughes fyrrum knattspyrnustjóri Manchester City voru ekki bestu vinir en Wenger segir leitt að sjá á eftir Hughes sem var rekinn frá störfum eftir sigurleikinn gegn Sunderland í gær, laugardag. Ég get tekið undir orð Wengers, það er ótrúlegt hvernig virðist alltaf byrjað á stjórnunum. Errm , ekki orðrétt hans orð en samt. Það er svo spurning hvort staða Sunderlands verði betri við þetta. Leyfi ég mér að efast um það. Ég er hins vegar bara mjög ánægð að við Arsenal-áhangendur höfum okkar mann í brúnni og vonandi verður hann það um ókomin ár.... Áfram ArsenalGrin
mbl.is Wenger: Leitt að sjá á eftir Hughes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Van Persie verður lengi frá keppni......

Ég er hreinlega miður mín Crying eftir að hafa lesið um Persie.... Alltaf eitthvað svona þegar allt er að ganga upp hjá mínum mönnumBlush

Persie var borinn af velli í gærkvöld þegar Holland sótti Ítalíu heim í vináttulandsleik í Pescara.  Og er það miður að hann skuli nú þurfa að vera frá næstu mánuði útaf  slitnu liðbandi. En hann jafnar sig vonandi á met tíma.Smile


mbl.is Van Persie verður lengi frá keppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er þetta með íþróttafréttamenn þegar kemur að enska boltanum....?

Arsenal hélt sig hafa jafnað metin í uppbótartíma þegar Van Persie skoraði en markið var dæmt af vegna rangstöðu og í kjölfari var Wenger rekinn upp í stúku fyrir mótmæli.

Þar með tapaði Arsenal sínum fyrsta leik á tímabilinu en liðið hefur 6 stig eftir þrjá leiki en United 9 stig eftir fjóra leiki. Arsenal veitt meisturunum svo sannarlega harða keppni en leikurinn var í járnum allan tímann. 

Þetta er tekið beint upp frá mbl.is og dæmigert að þurfa að lesa að; ,,Arsenal hafi svo sannarlega veitt meisturunum harða keppni''...... Eins og ekki hefð mátt standa að ,,Man U  veitti Arsenal svo sannarlega harða keppi, en leikurinn var í járnum allan tímann''...... það segir nú meira en mörg orð.

Nei það er allt á eina bókina lært hér á landi þegar kemur að enska boltanum við getum þakkað fyrir ef nefnd eru fleiri en 2 lið í úrvalsdeildinni. Þetta er að verða hálf barnalegt hjá íþróttafréttamönnum. Hugsið nú um heildina og munið að það er mikil breidd í enska boltanum og spennandi þegar deildin er að byrja og raunar gaman að sjá þegar lið sem kannski eru ekki eins algeng í efstu sætum úrvalsdeildar tróna í toppsætunum sum skemur en önnur, en gefum þeim líka séns.

Það eru fleiri lið í úrvalsdeildinni  en 2-4 lið, ef þið eruð ekki vissir þá skulu þið bara hafa það hugfast að þau eru 20. Sýnið smá reisn og vinnið fagmannlega þegar kemur að enska boltanum hvar sem er í fréttum.Smile


Van Persie og Adebayor úr leik....

Ég trúi þessu varla.... þetta ætlar engan endi að taka.  Enn og  aftur þurfum við að fara í leik án okkar lykilmanna. Hins vegar er ekki hægt annað en að vona að þetta gangi vel þrátt fyrir þessa blóðtöku. Ég er nú búin að jafna mig á svekkelsinu síðan um helgina annað er bara ekki í boði. Og svo er bara að taka þetta.....
mbl.is Van Persie og Adebayor úr leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húllarar, eru auðvitað svekktir....

..... Ég trúi því samt ekki að jafn kurteis leikmaður og FabregasSmile fyrirliði Arsenal hræki á nokkurn mann..... Arsenal voru miklu betri aðilinn í þessum bikarleik og þó svo hægt sé að tala um rangstæðu mark svona eftir á, þá er óþarfi að fara út í skítkast. Það eru ekki íþróttamannsleg viðbrögð. Arsenal menn hafa tapað leik þegar þeir hafa verið ranglega dæmdir rangstæðirWoundering . En flottir eins og alltaf mínir mennWhistling
mbl.is Hull-menn standa á sínu gagnvart Fabregas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foreldraráð Hafnarfjarðarboðar til málþings um skólamál laugardaginn 7. mars frá kl.9.30-14.00 í Víðistaðaskóla.

 
9.30   Kaffi og rúnstykki í boði Kökulistar ehf. Firði Hafnarfirði.

10.00 Setning
- talsmaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar Helena Mjöll Jóhannsdóttir.

10.10 - 10.30 Gerður G. Óskarsdóttir fyrrum fræðslustjóri - „Skólinn á 21. öld“


10.30 - 10.50 Sif Vígþórsdóttir skólastjóri Norðlingaskóla - „Er framtíðin hafin í íslenskum                                 grunnskólum?“


10.50 - 11.10 Viðar Halldórsson, félagsfræðingur - ,, Brottfall úr skipulögðu tómstundastarfi ungmenna.”

11.10 - 11.20 Geir Bjarnason, forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar – ,,Forvarnir”


11.20 - 11.45 Pallborðsumræður – stjórnandi Páll Ólafsson, félagsráðgjafi.


11.45 - 12.30 Matarhlé -  súpa og brauð
 í boði S.S.

12.30 - 13.30 Málstofur (alls fjórar sem fólk getur valið á milli)
1.  Endurskoðun Skólastefnu Hafnarfjarðar.2.  Skóladagatal - vetrarfrí - tengsl skóla og atvinnulífs.

3.  Samstarf skóla, tómstunda og tónlistar.  Forvarnir.
4.  Samvinna skólastiga: Leik-, grunn- og framhaldsskóla13.30 - 13.55 Skýrslur úr málstofum kynntar

14.00 Málþingi slitið
Skráning, fyrir 6. mars er á foreldrarad@hafnarfjordur.is ekki nauðsynlegt en gott ;)Málþingið er styrkt af Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.

 


Næsta síða »

Höfundur

Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Ég er varabæjarfulltrúi f. Samfylkinguna í Hafnarfirði. Og starfa sem ráðgjafi/fulltrúi á skrifstofunni hjá Meðferðarheimilinu í Krýsuvík. Er formaður Forvarnarnefndar Hafnarfjarðar. Talsmaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar. En fyrst og fremst er ég móðir 4 fábærra baran/unglinga og eiginkona míns ekta maka Hans
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband