Fyrir dóttur Þórdísar Tinnu......

Þið sem lesið bloggið mitt sjáið að mér eru mæðgurnar Þórdís Tinna og Kolbrún Ragnheiður ( KR er vinkona og bekkjarsystir dóttur minnar) ofarlega í huga.InLove Þórdís Tinna berst eins og hetja við krabbamein og litla stúlkan hennar stendur sig líka eins og hetja. Ég sá á blogginu hennar ÞT ( sem ég les mjög reglulega) það sem vinnuveitendur hennar hafa gert og ákvað að setja það hér inn í von um að fólk verði duglegt að leggja þeim lið. Með þakklæti og von um betri heilsu hjá ÞT.Heart 

Fyrrum vinnuveitendur Þórdísar Tinnu, hjá heildversluninni Sportís í Garðabæ, hafa staðið þétt við bakið á þeim mæðgum með ýmsum hætti frá því að Þórdís greindist. Nú í ár hafa þau sent öllum sínum viðskiptavinum tölvupóst þar sem fram kemur að í stað þess að senda jólakort og konfekt hafi þau stofnað reikning í nafni Kolbrúnar Ragnheiðar. Markmið þessa sjóðs er að m.a. að styrkja hana svo hún geti haldið áfram að stunda píanónámið sitt sem og annað sem framtíðin ber í skauti sér. Þegar Anna Sigga og Skúli hjá Sportís hringdu í okkur og tilkynntu okkur þetta gátum við ekki annað enn klökknað yfir þessu framtaki þeirra. Við viljum því koma á framfæri djúpu þakklæti til þeirra.  

Við ákváðum að láta reikningsnúmerið fylgja hér fyrir þá sem hafa áhuga á að leggja þeim lið:

1152-15-201700, kt: 241098-2149.

 

Einnig höfum við ásamt þeim, Önnu Siggu, Skúla og börnum myndað svokallað tengslanet eða stuðningshóp fyrir Kolbrúnu Ragnheiði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Gleðileg Jól mín kæra

Valgerður Halldórsdóttir, 23.12.2007 kl. 17:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Ég er varabæjarfulltrúi f. Samfylkinguna í Hafnarfirði. Og starfa sem ráðgjafi/fulltrúi á skrifstofunni hjá Meðferðarheimilinu í Krýsuvík. Er formaður Forvarnarnefndar Hafnarfjarðar. Talsmaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar. En fyrst og fremst er ég móðir 4 fábærra baran/unglinga og eiginkona míns ekta maka Hans
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 709

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband