Táragasi beitt á Austurvelli

Ég get svarið það! Ég átti nú satt að segja aldrei von á því að upp kæmi svipuð staða og varð á Austurvelli fyrir sex áratugum síðan. En þannig er nú staðan og skildi engan undra. Ekkert er að gerast á okkar háttvirta alþingi........ Þegar fólk vill breytingar dugar ekki að haldið sé áfram í kyrrstöðu. Að nokkrir peningagráðugir menn og konur hafi getað komið okkur í þessa aumu stöðu er hreint út sagt hryllilegt og ekki sér fyrir endann á ástandinu því svokölluð "kreppa" er bara á byrjunarreit. Það er sama hvert litið er; fólk missir vinnu hægri vinstri, hækkun matarverðs er komin upp úr öllu valdi og ekkert er að gert, eina sem sagt er; krónan er svo lág....Angry En hver er lausnin? Kaup lækkar og hinn almenni borgari hefur minna og minna á milli handana og þakkar fyrir að geta borgað af því sem borga þarf. En á meðan geta þeir sem komu okkur í þessa aðstöðu (alla vega að mestu leiti, ef ekki öllu) haldið sér í sínum höllum hér og þar í heiminum og látið lítið á sér bera nema þá til að koma í sjónvarps-viðtal og segja okkur hversu leiðinlegt það sé að við séum í þessari stöðu og borga þá kannski eitthvað smá..... til baka sem við borgum svo fulla skatta af. Þetta slær ekki á mín sár og ég veit að þessar upphæðir ( eins og t.d. hjá Bjarna ) skipta hann engu máli þetta var bara friðþæging af hans hálfu.Shocking

Nei, það er mál að linni. Fram, fram til breytinga það er það sem fólk þráir.


mbl.is Táragasi beitt á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

... og reiðin er slík að friðarsinnar fá ekki einu sinni tækifæri til að tjá sig, hvað þá hér á blogginu. Eineltið er búin að ná einnig nýjum hæðum líkt og mótmælin !!

Nafnlaus friðarsinni (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 01:14

2 Smámynd: Helena Mjöll Jóhannsdóttir

Ja hérna, hvar endar þetta? Er það virkileg svo..... Ég segi ekki meir

Helena Mjöll Jóhannsdóttir, 22.1.2009 kl. 01:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Helena Mjöll Jóhannsdóttir
Ég er varabæjarfulltrúi f. Samfylkinguna í Hafnarfirði. Og starfa sem ráðgjafi/fulltrúi á skrifstofunni hjá Meðferðarheimilinu í Krýsuvík. Er formaður Forvarnarnefndar Hafnarfjarðar. Talsmaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar. En fyrst og fremst er ég móðir 4 fábærra baran/unglinga og eiginkona míns ekta maka Hans
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband